BEYGLURNAR

Birna - Íris - Rósa - Steinunn - Steinvör

28.02.2009 17:50:28 / Steinunn

Saumaklúbbur

Jæja verslóskvísur, þar sem Sóley (og reyndar fleiri) er erlendis er ég næst í röðinni að halda saumó. Ég ætlaði mér að vera búin að halda hann en það hefur ekki hentað. Mig langaði því að athuga hvernig næstkomandi fimmtudagskvöld hentar ykkur?


                           Endilega "kommentið"

» 23 hafa sagt sína skoðun

01.01.2009 19:43:25 / Rósa

Spilakvöld

Jæja, ég ákvað að skella bara inn smá bloggi þar sem það er farið að styttast í hittinginn okkar en margt eftir að ákveða.
Við beyglur + makar ætlum s.s. að hittast á sunnudagskvöldið, borða jafnvel saman góðan mat og spila síðan fram á kvöld/nótt. Aðeins að hittast og njóta þess að gera eitthvað saman áður en hún Íris okkar snýr aftur til ítalíu og hún Birna okkar stingur af til Ástralíu.
En þá vakna ýmsar spurningar:
  1. Hvar eigum við að vera? Einhver sem býðst til að bjóða okkur til sín?
  2. Hvað eigum við að gera í sambandi við mat? Elda eitthvað gott saman? Fara auðveldu leiðina og panta mat og borða saman (t.d. nings, austurlanda-hraðlestina, pizzu eða eitthvað annað sniðugt)? Eða viljið þið frekar sleppa mat og hittast bara eftir matinn?
  3. Hvað viljiði spila? Á ekki einhver skemmtileg borðspil, svona fjölskylduspil t.d. trivial, party og co, gettu betur eða eitthvað annað sniðugt? Kom ekki eitthvað svoleiðis upp úr jólapakkanum hjá einhverjum eða möndlugjöfinni?
Ég hlakka allavega til að sjá ykkur og verið nú dugleg að kommenta :D


» 18 hafa sagt sína skoðun

25.12.2008 17:23:38 / Rósa

Saumó

Gleðileg jól og hafið það gott um hátíðirnar!

Verzlóskvísur, ég var að spá í að hafa saumaklúbb á sunnudaginn (28.des). Hvernig hentar það ykkur?

» 9 hafa sagt sína skoðun

13.11.2008 16:03:12 / Birna

Það eru að koma jól

Jæja núna fer að styttast í Litlu jólin í Birnukoti :haha:

Smákökur

Jólalög 

Heitt kakó

Og rúsínan í pylsuendanum   er sú sama og í fyrra eða pakkaleikurinn góði (allir koma með pakka fyrir ca 500kr)

 


Í þetta sinn mun ég reyna að brenna smákökurnar ekki ;)

Beyglum, Girls, Strákunum, mökum og börnum er
boðið upp í bústað til mín... og ég var að spá hvaða dagsetning hentaði? Íris kemur heim um kvöldið laugardaginn 20. desember þannig að það kom upp sú hugmynd að halda litlu jólin sunnudaginn 21. desember. Hvað finnst ykkur um það?
 

 

 

Skráning er hafin hérna á síðunni :d Öllum er svo velkomið að gista, eða það er að segja á meðan það er pláss 8)

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

17.10.2008 22:54:16 / Rósa

Matarklúbbsfélagar, takið 30.okt frá...

...því þá verður Matarklúbbur, jibbí :D



» 2 hafa sagt sína skoðun

09.09.2008 18:02:39 / Rósa

Hittingur

Jæja skvísur, allt of langt síðan við höfum gert eitthvað saman, höfum verið svo uppteknar eitthvað síðustu vikur. Hvað segiði um hitting annað kvöld??

» 3 hafa sagt sína skoðun

30.07.2008 15:49:12 / Birna

Útileikir

Það er sumar, sumar, sumar og sól :haha:... þess vegna ætlum við að hittast á skólalóðinni við Breiðagerðisskóla kl. 20 í kvöld og fara í leiki eins og til dæmis skotbolta, setbolta, brennó, kíló, snú-snú og það sem okkur dettur í hug ;) Ég kem með skotbolta og snú-snú band, Rósa kemur örugglega með fótbolta og ef þú átt eitthvað snigugt, endilega komdu með það :)



Sjáumst 8)


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.07.2008 17:07:32 / Steinvör

Labbilabb

Jæja stúlkur mínar!! Hvert eigum við að fara á miðvikudaginn?? Ég er til í labb frá Nauthólsvíkinni, getum labbað yfir í Vesturbæinn eða farið í Öskjuhlíðina að hitta perrana :) Eins er ég til í Laugardalinn. Hvað hafið þið um þetta mjög svo mikilvæga mál að segja??

» 7 hafa sagt sína skoðun

23.07.2008 13:10:03 / Rósa

Miðvikudagsganga

Jæja stelpur, það er kominn miðvikudagur sem þýðir aðeins eitt: Ganga í kvöld :D
Þá er bara spurning hverjar ætla að mæta? Og hvert við eigum að ganga? Er róleg ganga í Nauthólsvík/Laugardal/Heiðmörk málið? Eða eigum við að ráðast á eitthvert fjallið hér í nágrenni höfuðborgarsvæðisins?? Eða jafnvel fara í hjólatúr? Endilega kommentið hvort þið mætið í kvöld og hvað ykkur líst best á...

» 4 hafa sagt sína skoðun

18.07.2008 01:46:29 / Rósa

Þakgil

Ég ákvað að koma með smá blogg þar sem það er vel meira en mánuður síðan Birna og Íris áttu afmæli og ég er orðin svolítið leið á því bloggi.
Ég ætlaði aðallega bara að sýna ykkur myndir af Þakgili, þar sem við Birna ætlum að fara í útilegu um helgina.

















Ef einhvern langar með okkur á þennan fallega stað, taliði þá bara við okkur fyrir kl 18, þá förum við að leggja í hann. Það er allavega nóg pláss í bílnum.

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.06.2008 11:42:09 / Steinvör

AFMÆLI

Ég vil óska tvíburunum Birnu og Írisi innilega til hamingju með árin 23!!!

Þær lengi lifi!!! Sjibbí

» 3 hafa sagt sína skoðun

01.05.2008 12:17:06 / Steinvör

Ertu alveg að gefast upp??

Er þreytan farin að segja til sín í próflestrinum??
Vantar þig aukna orku?

Ef svarið er já, er POWERTHIRST klárlega það sem þig vantar!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.04.2008 22:10:52 / Birna

Og Rósa er búin að eiga afmæli ;)

Ég ákvað að skrifa nýja færslu bara svona í tilefni þess að Rósa er búin að eiga afmæli.

Ég er sem sagt búin í prófum :haha: ... enn hvað það er nú gaman þrátt fyrir að það sé rosalega skrítið að vera búin með síðasta prófið mitt í viðskiptafræði í Háskólanum í Reykjavík. Þetta er búið að vera alveg ótrúlega fljótt að líða þetta háskólanám mitt enda er þetta búið að vera alveg rosalega gaman. Núna er því bara BS ritgerðin eftir :)
Til að fagna þessu er ég að fara með Beyglunum í Birnukot á morgun og á laugardaginn er svo sólakaffi fyrir foreldra okkar 8) Um kvöldið er ég svo að fara á djammið... újee :lol:
Á sunnudaginn ætla ég og Rósa að fara á bretti í Skálafelli ef það verður opið.
Í næstu viku erum við svo að öllum líkindum að gefa út Viðskiptavit... enn hvað það verður nú gaman þegar við erum búin að gefa það út :d
Sem sagt bara tóm gleði og hamingja... gangi ykkur hinum sem eiga eftir prófin vel í þeim verkefnum :!: 8)

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.04.2008 21:22:11 / Rósa

Ég á afmæli...

...eftir 3 daga :D

Ég ætla að vera með kökur á boðstólnum fyri þá sem vilja kíkja um kvöldið, allir velkomnir :D




» 14 hafa sagt sína skoðun

24.03.2008 15:23:58 / Birna

Páskafrí :)

Jæja þá er páskafríð mitt búið... ég byrja reynda ekki í skólanum fyrr en á miðvikudaginn en ég ákvað að taka mér einn alveg frídag og hann var í gær :) Ekkert smá nice að vera ekkert að hugsa um blaðið, BS ritgerðina eða hin skilaverkefnin mín í einn dag ;) Ég var uppi í bústað með fjölskyldunni og þar var spilað, borðað fullt af góðum mat og svo fór ég í göngutúr. Í göngutúrnum fór ég í keppni þar sem við fórum í kapp um hver yrði fljótari að hoppa jafnfætis að ákveðnum stað... ég hoppaði og hoppaði þanga til að úlpan sem ég var búin að binda um mig datt allt í einu af mér og þegar ég sný við til að ná í hana sé ég að hún liggur í risastórum hestaskít sem var sá eini á allri þessari leið... hehe já maður er sko heppinn ;) Jæja ég ætla að halda áfram með samningatækni, var bara búin að fá svo mikið leið á blogginu sem var hér á undan.


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 31
Leitarbox